BusinessWeek
Útlit
BusinessWeek er bandarískt viðskiptatímarit gefið út af McGraw-Hill. Það var fyrst gefið út árið 1929 (sem The Business Week) undir stjórn Malcolm Muir, sem var á þeim tíma yfirmaður McGraw-Hill Publishing Company.[1] Helstu keppinautar tímaritsins í viðskiptafréttum eru Fortune og Forbes, sem bæði koma út á tveggja vikna fresti.
Frá 1988 hefur BusinessWeek gefið út árlegan lista yfir MBA-nám við viðskiptaháskóla í Bandaríkjunum.[2]
Þann 12. október 2007 kom BusinessWeek út í fyrsta skipti í fjögur ár með nýju endurhönnuðu útliti. Nokkrir hlutar fengu nýtt útlit til að afmarka innihald tímaritsins betur við fréttir og alþjóðamál, en hlutinn „Executive Life“ var skorinn niður.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Corporate History-Development“. McGraw-Hill. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. ágúst 2007. Sótt 7. ágúst 2007.
- ↑ „BusinessWeek Business School Rankings“. BusinessWeek. Sótt 23. janúar 2007.